Friday, April 27, 2012
Saturday, April 7, 2012
Enginn smá nerd..
Traust kunnátta í íslensku er ein meginundirstaða haldgóðrar menntunar.
jæja þá, en ekki vera á þessu bloggi að pæla í stafsetningar villum.

Elskulegi Sumarliði sh-110
www.sumarlidi.net

Vélbáturinn Sumarliði SH 110 var upphaflega smíðaður sem áraskip, sennilega sexæringur. Báturinn var þó örugglega smíðaður fyrir 1875 að því er fram kemur í óprentuðum æviminningum Skúla Skúlasonar (1875-1950) skipstjóra í Stykkishólmi, hugsanlega 1860-1870.
Talið er að Bergsveinn Ólafsson (1839-1899) frá Bjarneyjum hafi smíðað Sumarliða.
Sumarliði er 7,62 m. að lengd, 2,26 m. að breidd, 0,91 m. að dýpt og 2,8 brl.
Faðir Skúla, Skúli Skúlason bóndi í Fagurey á Breiðafirði, réri á Sumarliða frá Hellissandi fyrir 1875, en þá var hann í eigu Jóns bónda Finnssonar í Fagurey. Seinna eignaðist Skúli yngri bátinn
og eftir honum bróðursonur hans, Bergsveinn Jónsson (skráður eigandi frá 21. apríl 1952) hafnsögumaður í Stykkishólmi og notaði sem eins konar lóðsbát fram um 1970.
Ingvar Breiðfjörð í Stykkishólmi eignast Sumarliða um 1967-68. Páll heldur að faðir hans hafi keypt bátinn frá Ólafsvík og þá hafi hann verið í frekar slæmu standi. Ingvar var alltaf eitthvað að ditta að Sumarliða meðan báturinn var í hans eigu. Páll kvaðst muna að þeir skiptu um einhver borð í Sumarliða, man ekki hve mikið. Ingvar seldi Sumarliða um 1980. Ingvar notaði bátinn á handfæri, haukalóð og í lundaveiði. (Upplýsingar frá Páli Ingvarssyni. Páll skoðar betur)
Báturinn seldur Helga Eiríkssyni Stykkishólmi 27. júlí 1981 hét Sumarliði SH 410. Seldur 30. júlí 1985 Rafni Franklin, hét Gógó RE 410. Seldur 3. febrúar 1986 Guðbergi Sigursteinssyni, Smáratúni. Báturinn var skráður í Halakotsvör og hét Sumarliði GK 300.
Eigandi Sumarliða meira og minna frá 1986 - 2010 voru þeir feðgar Guðbergur Sigursteinsson og Magnús Ívar Guðbergsson, Vogum, en þar var báturinn geymdur á þurru landi og utanhúss. Magnús keypti hann af manni frá Akranesi (Magnús man ekki hvað hann heitir) árið 1986 og notaði til fiskiróðra til 1994, er bátnum var lagt. Undantekningar á þessur eru: Seldur 13. febrúar 1990 Kristjáni Kristmannssyni og Hafsteini Fjalari Hilmarssyni, Vogum. Seldur 19. febrúar 1992 Magnúsi Ágústssyni, Vogum. Seldur 2. desember 1992 Magnúsi Ívari Guðbergssyni, Vogum. Seldur 19. mars 1993 Þórði S. Jónssyni, Hvammstanga, sama nafn og númer. Seldur 24. mars 1993 Fiskmarki hf, Seltjarnarnesi, heitir Auðlind HF 29. Seldur 27. júlí 1993 Marlind hf., Reykjavík. Báturinn er skráður á Seltjarnarnesi 1997.
Faðir Magnúsar er skipasmiður og gerðu þeir feðgar miklar endurbætur á bátnum. Skiptu um hluta af kilinum, skipt um öll bönd, nýjar lunningar, skiptu um framstefni, tóku stýrishúsið af, hækkuðu það upp og notuðu efri hlutann af stýrishúsinu áfram og stækkuðu kassann fram svo eitthvað sé nefnt. Sumarliði var svo sjósettur aftur eftir endurbætur þann 17. júní 1986. Vélin í bátnum var Sabb 1 cyl. 10 hestafla.
Á gömlum myndum af Sumarliða, sennilega síðan um 1940 má sjá hann stýrihússlausan.
Eigandi bátsins í dag er Bergsveinn Jónsson og Jón Ragnar Daðasson er Sumarliði því aftur kominn í eigu afkomanda Fagureyinga.

Sunday, April 1, 2012
Góðar fréttir að norðan..
Rósa hjá síldarminjasafni sendi mér þessar gleði fréttir .Til hamingju seigi ég bara..
Undirritaður hefur verið samningur milli Síldarminjasafnsins og sveitarfélagsins Fjallabyggðar um yfirtöku safnsins á Slippnum á Siglufirði. Fór undirritunin fram við hátíðlega athöfn í Slippnum fimmtudaginn 29. mars. Slippeignin samanstendur af verkstæðishúsi og dráttarbraut með gömlu skipi ásamt lóð.
Slippverkstæðið er rúmlega 300 fermetrar að gólffleti, byggt árið 1934 og búið gömlum tækjum og verkfærum og eru elstu trésmíðavélarnar nær 100 ára gamlar. Dráttarbrautin var keypt notuð frá Akureyri um 1930 og mikið endurnýjuð og stækkuð um 1950. Þar stendur gamalt skip sem upprunalega hét Guðmundur Þórðarsson GK 75, 52 brl., smíðaður í Hafnarfirði 1943.
Siglufjörður á sér umtalsverða skipasmíðasögu. Á 19. öld voru stundaðar þar smíðar á skonnortum sem gengu til hákarlaveiða og síðar síldveiða. Í Slippnum var síðan stunduð bátasmíði og þjónusta við norðlenska bátaflotann í 60 ár. Má telja það nokkuð víst að hann sé elsta smábátasmíðastöð landsins og jafnvel sú eina sinnar tegundar. Starfsmenn Síldarminjasafnsins hafa unnið að árabátasmíði í Slippnum síðan 2009 og hafið endurbætur á húsinu. Þar verður í senn sögusýning fyrir safngesti og stundaðar bátasmíðar og viðgerðir eldri báta.
Vert er að benda á myndband Magnúsar Sveinssonar frá athöfninni í gær:http://vimeo.com/39456410
sem og ljósmyndir hans: http://www.flickr.com/photos/ magnussveinsson/sets/ 72157629698768349/detail/
sem og ljósmyndir hans: http://www.flickr.com/photos/
Í fyrramálið, laugardaginn 31. mars verður athöfninni útvarpað í þættinum Við sjávarsíðuna á Rás1, kl. 08:05.
Subscribe to:
Comments (Atom)

.jpg)